Comment on Icelandic-deviants's profile

ingunn88's avatar
Spurning. Er að reyna að joina þessa grúppu, ýti á join group en ekkert gerist. Þarf að samþykkja fólk eða hvernig er það? Þarf ég að hafa premium membership til að geta verið í grúppum?
asa-bryndis's avatar
Sæl Ingunn. Nei, maður þarf ekki premium membership, það geta allir íslenskir DA meðlimir fengið að vera með! Ég hef þó ekki séð neina beiðni hér inn á hópnum frá þér um að ganga í hópnum, svo þetta virkar frekar eins og e-h error frá DA. Prófaðu aftur seinna og athugaðu hvort það gangi ekki upp, hafðu samband ef ekkert gerist.
ingunn88's avatar
Takk fyrir svarið. Skal prufa þetta aftur á morgun. Er það ekki annars bara klikka á join group? Finnst það vera soldið basic!
asa-bryndis's avatar
Jú, það er bara nákvæmlega það sem maður á að gera. Ég hef ekki enn séð nýja beiðni frá þér! Ég prófaði að senda þér 'invite' frá hópnum, sjáðu hvort það gangi upp.
ingunn88's avatar
Þetta er voðalega skrítið allt. Búin að senda deviantart svona "error report" um þetta en hef ekki fengið svar ennþá. Og sé ekkert invite heldur :/ 
Skapamjodur's avatar
Dularfullt! En já, þetta er ég aftur, en núna í öðrum account sem tengist hópnum. Prófaði að senda þér annað invite af þessum account, sérðu það? Annars prófaði ég aðeins að breyta stillingunum svo að fólk er núna samþykkt sjálfkrafa ef það ýtir á 'Join', þarf ekki lengur að fara í gegnum okkar samþykki. Athugaði aftur hvort það virki núna, annars breyti ég því bara aftur. Vonandi svarar þá DA þér bráðlega ef ekkert af þessu virkar, svekk.
ingunn88's avatar
Ohh sweet! Fékk inviteið hjá þér núna :) Takk æðislega fyrir það! Jeijj, komin í grúppuna! :)
Skapamjodur's avatar
Frábært, gott að heyra! :)